Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   lau 17. október 2020 20:38
Victor Pálsson
Ítalía: Juventus gerði jafntefli
Crotone 1 - 1 Juventus
1-0 Simy(víti, 12')
1-1 Alvaro Morata(21')
Rautt spjald: Federico Chiesa(Juventus, '60)

Ítalíumeistarar Juventus töpuðu stigum í annað sinn í Serie A í kvöld er liðið mætti Crotone í fjórðu umferð.

Juventus hefur enn ekki tapað deildarleik en gerði 2-2 jafntefli við Roma í annarri umferð.

Niðurstaðan í dag var einnig jafntefli en Alvaro Morata sá um að tryggja gestunum stig með marki í fyrri hálfleik.

Crotone fékk draumabyrjun á níundu mínútu þegar framherjinn Simy skoraði af vítapunktinum.

Juventus spilaði síðustu 30 mínúturnar manni færri en Federico Chiesa fékk beint rautt spjald þegar 60 mínútur voru komnar á klukkuna.

Juventus er fjórum stigum á eftir toppliði AC Milan sem vann grannaslaginn gegn Inter í dag, 2-1.

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner