Fotbolti.net
17.10.26 - 18:20
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Aron Lucas sleit krossband

Aron Lucas í leik með ÍBV gegn Víkingi.

Aron Lucas í leik með ÍBV gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes verður lengi frá en hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í tapi ÍBV gegn Þór fyrir viku síðan. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag.

Aron er 22 ára miðjumaður sem kom til ÍBV frá uppeldisfélagi sínu Selfossi í sumarglugganum. Um var að ræða lánssamning út tímabilið en ÍBV er með kauprétt. Aron lék átta leiki með ÍBV á tímabilinu og skoraði eitt mark.
Í viðtali í ágúst var Aron spurður að því hvort hann vonaðist til að skiptin til ÍBV yrðu til frambúðar?

„Framtíðin er skemmtileg, ég fæ að finna hvernig það er að spila í Bestu deildinni út þetta tímabil og síðan verður bara tekin ákvörðun um framhaldið eftir tímabilið. Ég hef ekkert hugsað það lengra, er hérna núna þetta tímabil og vonandi næ ég að hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum og sanna mig sem leikmaður sem á heima í deild þeirra bestu. Auðvitað draumur samt að geta spilað áfram í Bestu deildinni," sagði Aron.

ÍBV féll úr Bestu deildinni eftir tapið gegn Þór en Selfoss komst upp úr 2. deildinni í sumar og liðin munu því vera saman í Lengjudeildinni á næsta ári.

Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.