Fotbolti.net
17.10.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Eberl: Engin ástæða til að kaupa nýja leikmenn

Eberl: Engin ástæða til að kaupa nýja leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Þýska risaveldið FC Bayern hefur verið að misstíga sig furðu oft á nýju tímabili. Liðið er búið að gera tvö jafntefli í fimm fyrstu deildarleikjunum auk þess að gera jafntefli við Noregsmeistara Viking í Meistaradeildinni í miðri viku.
Meiðsli Havertz og Musiala ekki alvarleg
TENGT EFNI

Meiðsli Havertz og Musiala ekki alvarleg

Max Eberl stjórnandi hjá Bayern var spurður hvort félagið þyrfti að kaupa inn liðsstyrk í janúarglugganum til að reyna að forðast að tapa stigum jafn oft og á upphafi tímabils.

„Það er alls engin ástæða til að kaupa inn nýja leikmenn í janúarglugganum. Við erum með leikmenn sem eru upp á sitt besta og með leikmenn sem eru að komast þangað," svaraði Eberl.

Það þykir því ljóst að Bayern er ekki í leit að nýjum leikmönnum í janúar þrátt fyrir að vera aðeins með 23 leikmanna hóp. Allir eru við góða heilsu nema Jamal Musiala sem er að glíma við smávægileg meiðsli og þá er Michael Olise í leikbanni í Meistaradeildinni.

Bara Sapoko Ndiaye og Lennart Karl eru einu táningarnir í hópnum á meðan fertugur Manuel Neuer er aldursforseti.
Eberl: Engin ástæða til að kaupa nýja leikmenn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.