17.10.26 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
FH-ingar biðla til trúarleiðtoga og bareigenda

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er gríðarlega mikilvægur leikur á dagskrá í efri hluta Bestu deildar kvenna fyrir hádegi á morgun.
Þar tekur FH á móti Þrótti R. á Kaplakrikavelli og þurfa Hafnfirðingar á sigri að halda í spennandi titilbaráttu.
FH er í öðru sæti, þremur stigum á eftir Breiðabliki þegar tvær umferðir eru eftir. Liðin eru með mjög svipaðar markatölur og eigast við í innbyrðisslag í lokaumferð deildartímabilsins, en sá leikur fer fram í Kópavogi.
FHingar vilja tryggja að vel sé mætt á völlinn og biðla því til trúarleiðtoga og bareigenda í Hafnarfirði að breyta sínum starfsháttum.
FHingar vilja að trúarleiðtogar fresti messum og öðrum athöfnum til að gera trúræknum stuðningsmönnum kleift að mæta á Kaplakrika án þess að finna til sektarkenndar. Þá vilja þeir að bareigendur loki börunum snemma í kvöld til að forðast að stuðningsmenn mæti alltof ryðgaðir að styðja við FH í fyrramálið.

Besta kvenna - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 21 | +30 | 46 |
| 2 | FH | 21 | +29 | 43 |
| 3 | ÍBV | 22 | -9 | 30 |
| 4 | Grindavík/Njarðvík | 22 | -9 | 29 |
| 5 | Stjarnan | 21 | -1 | 27 |
| 6 | Þróttur R. | 21 | -1 | 26 |