17.10.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola: Ngumoha þarf að bæta sig án boltans

Ngumoha skoraði tvö og lagði eitt upp í 29 keppnisleikjum á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Táningurinn Rio Ngumoha á enn eftir að skora eða leggja upp á nýju tímabili og segir Andoni Iraola þjálfari Liverpool að það sé ýmislegt sem hann þurfi að bæta við sinn leik.
Ngumoha er aðeins 18 ára gamall og hefur fjórum sinnum verið í byrjunarliði Liverpool á tímabilinu, síðast í 6-3 sigri á útivelli gegn LASK Linz í miðri viku þegar hann fór meiddur af velli á 85. mínútu.
„Rio Ngumoha veit að hann er í hæsta gæðaflokki þegar kemur að ákveðnum þáttum. Hann er til dæmis einn af þeim allra bestu einn á einn, það er svo erfitt að verjast honum þegar hann er með boltann," sagði Iraola á fréttamannafundi í gær.
„Hann þarf samt að bæta sig á ákveðnum sviðum, sérstaklega án boltans."
Liverpool heimsækir Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag og má búast við að Hákon Rafn Valdimarsson verði á sínum stað á varamannabekk Brentford.