Fotbolti.net
17.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Ótrúlega sjaldgæf staða í norsku titilbaráttunni

Viking náði sögulegu jafntefli gegn FC Bayern í vikunni.

Viking náði sögulegu jafntefli gegn FC Bayern í vikunni.

Canon

Mynd: EPA

Norsku stórveldin Viking og Bodö/Glimt eru í harðri titilbaráttu í norska boltanum um þessar mundir og mæta þau bæði til leiks í dag.
„Ég hef beðið í 34 ár eftir þessu"
TENGT EFNI

„Ég hef beðið í 34 ár eftir þessu"

Staðan í titilbaráttunni er í raun ótrúleg, þar sem toppliðin tvö eru með nákvæmlega jafn mörg stig og markatölu eftir 22 umferðir af 30 á deildartímabilinu. Þau eru svo gott sem búin að stinga af með 53 stig - 14 stigum á undan þriðja sætinu.

Þau eru bæði búin að skora 56 mörk og fá 20 á sig, en Viking vermir toppsætið sem stendur þökk sé innbyrðisviðureignum. Viking vann 5-0 gegn Bodö/Glimt í vor en innbyrðisviðureignir telja ekki mikið í Noregi.

Ef liðin enda jöfn á stigum þá telur markatalan og ef markatalan er jöfn þá gilda mörk skoruð. Ef þau eru líka jöfn þá er gripið til innbyrðisviðureigna til að skera úr um sigurvegara.

Þess má geta að Amin Cosic, U21 landsliðsmaður Íslands, er partur af leikmannahópi Viking.

Bodö/Glimt heimsækir Viðar Ara Jónsson og félaga í liði HamKam í hádeginu, áður en Viking tekur á móti Fredrikstad klukkan 16:00.
Bodö/Glimt er þekkt fyrir að granda stórveldum í Evrópukeppnum og lagði Borussia Dortmund að velli í vikunni.

Bodö/Glimt er þekkt fyrir að granda stórveldum í Evrópukeppnum og lagði Borussia Dortmund að velli í vikunni.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.