Fotbolti.net
14.10.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ég hef beðið í 34 ár eftir þessu"

Zlatko Tripic.

Zlatko Tripic.

Canon

Mynd: EPA

Zlatko Tripic, fyrirliði Viking, var hæstánægður eftir að norska liðið náði í fyrsta stig í sögu félagsins í Meistaradeild Evrópu. Viking gerði 3-3 jafntefli við stórlið Bayern München í gærkvöldi.

Tripic, sem er 33 ára gamall, lék stórt hlutverk í leiknum og átti meðal annars þátt í því að Michael Olise, leikmaður Bayern, missti stjórn á skapi sínu og fékk að líta rauða spjaldið.
Olise fékk fyrst gult spjald fyrir brot á Tripic en fékk sitt annað gula spjald skömmu síðar fyrir að kasta boltanum í andlit fyrirliðans.

„Ég er ótrúlega ánægður. Mér finnst ég hafa náð að fara í taugarnar á hálfu Bayern-liðinu og ég hef beðið í 34 ár eftir þessu,“ sagði Tripic sem verður 34 ára í desember í samtali við TV2 eftir leikinn.

Hann var einnig spurður út í samskipti sín við Olise. „Mér tókst að trufla hann aðeins og hann kastaði boltanum beint í andlitið á mér. Mér finnst ég hafa unnið einvígið við hann í dag,“ sagði Tripic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.