17.10.26 - 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Táningar opnuðu markareikninginn í Bestu með stórglæsilegum mörkum

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór vann gríðarlega mikilvægan sigur á Stjörnunni í neðri hluta Bestu deildarinnar í dag.

TENGT EFNI
Siggi Höskulds: Tók smá blástur í hálfleik - Ungir markaskorarar
Akureyringar unnu 3-1 og voru markaskorarar liðsins allir á táningsaldri. Tveir þeirra opnuðu markareikninga sína í Bestu deildinni með stórglæsilegum mörkum áður en Þorri Ingólfsson skoraði sitt annað mark á deildartímabilinu.
Fyrst skoraði 18 ára Ásbjörn Líndal Arnarsson með föstu skoti beint úr aukaspyrnu en gestirnir úr Garðabæ jöfnuðu metin.
Næst var komið að Sverri Páli Ingasyni sem setti boltann í netið eftir glæsilegt einstaklingsframtak þar sem hann kom inn af hægri kantinum og lék á tvo Garðbæinga áður en hann skoraði. Sverrir Páll er 17 ára gamall en á átjánda aldursári.
Að lokum innsiglaði Þorri Ingólfsson sigurinn, en hann fagnaði 17 ára afmæli í ágúst og er því yngstur af strákunum þremur. Þetta var þó ekki hans fyrsta mark í Bestu deildinni á tímabilinu.
Ljóst þykir að framtíðin er björt á Akureyri en 2. flokkur Þórs varð Íslandsmeistari og sýndi flotta frammistöðu í Evrópukeppni unglingaliða.
Mörkin má sjá á Instagram síðu Bestu deildarinnar, eða hér örlítið neðar.