Fotbolti.net
17.10.26 - 17:27
Ívan Guðjón Baldursson

Siggi Höskulds: Tók smá blástur í hálfleik - Ungir markaskorarar

Auglýsing
Siggi Höskulds: Tók smá blástur í hálfleik - Ungir markaskorarar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs svaraði spurningum eftir dýrmætan sigur gegn Stjörnunni í dag.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 1 Stjarnan
Þór klifrar upp úr fallsæti með sigrinum og getur tryggt sæti sitt í Bestu deildinni með sigri á útivelli gegn FH í lokaumferðinni.

Siggi Höskulds segist ekki hafa verið ánægður með sína menn í fyrri hálfleik og lét þá heyra það í leikhlénu, þrátt fyrir að Þór væri 2-1 yfir á heimavelli.

„Mér fannst við nýta að vera með vindinn í bakið í fyrri hálfleik illa og við vorum að taka slæmar ákvarðanir. Við vorum ekki alveg 'on it' að lesa leikinn þannig að ég tók smá blástur á þá í hálfleik. Sérstaklega út af því að þau fáu varnarmóment sem við þurftum að eiga sem lið voru ekki nægilega góð. Við vorum að hleypa þeim alltof auðveldlega upp úr markspyrnunum sínum að spila upp og ég tók smá blástur á þá og menn gjörsamlega vöknuðu hérna í seinni hálfleik og voru gjörsamlega frábærir," sagði Siggi að leikslokum.

„Ég er hrikalega stoltur af liðinu, við erum með þrjá unga leikmenn sem skora mörkin hérna í dag 17, 18 og 18 ára. Þeir eru að taka risaskref hérna í efstu deild á lykilstundum og við erum ótrúlega stoltir af þessum leik.

„Við eigum einn leik eftir. Við þurfum að halda fókus og eiga góða viku og mæta í Kaplakrika næstu helgi, klárir. Við þurfum að halda spennustiginu niðri og njóta þess að spila svona stóra leiki. Við höfum verið góðir í stórleikjunum þar sem allt er undir. Við erum með góða blöndu af reynslumiklum og ungum mönnum þannig að ég trúi ekki öðru en að við mætum mjög ferskir næsta laugardag."


Siggi segist ekki trúa öðru en að stuðningsmenn Þórsara muni fjölmenna í Kaplakrika um næstu helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.