Fotbolti.net
17.10.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Luis Díaz með þrennu gegn RB Leipzig

Þýskaland: Luis Díaz með þrennu gegn RB Leipzig
Canon

Mynd: EPA

Bayern 6 - 1 RB Leipzig
1-0 Luis Diaz ('12 )
2-0 Aleksandar Pavlovic ('26 )
3-0 Michael Olise ('34 )
4-0 Luis Diaz ('47 )
5-0 Harry Kane ('52 )
6-0 Luis Diaz ('69 )
6-1 Andrija Maksimovic ('91 )
Lærlingar Vincent Kompany í stjörnum prýddu stórveldi FC Bayern hafa verið gagnrýndir eftir nokkra jafnteflisleiki að undanförnu.

Stjörnurnar svöruðu fyrir sig þegar RB Leipzig kíkti í heimsókn til München í dag og urðu lokatölur 6-1.

Luis Díaz var atkvæðamestur með þrjú mörk og eina stoðsendingu og þá komust Aleksandar Pavlovic, Michael Olise og Harry Kane einnig á blað.

Kane átti einnig tvær stoðsendingar á meðan Olise lagði eitt mark upp. Joshua Kimmich og Nathaniel Brown lögðu líka upp.

Staðan var orðin 6-0 eftir 70 mínútna leik og skoraði Andrija Maksimovic fánamarkið fyrir Leipzig í uppbótartíma, eftir undirbúning frá Brajan Gruda.

Bayern jafnar Borussia Dortmund á toppi þýsku deildarinnar með þessum sigri. Liðin eiga 14 stig eftir 6 umferðir en geta misst toppsætið til Freiburg.

Freiburg er með 13 stig og á leik til góða á morgun. Sá leikur verður þó mjög erfiður, á útivelli gegn Bayer Leverkusen.

Leipzig situr eftir í sjöunda sæti, með 9 stig eftir 6 umferðir.
Þýskaland: Luis Díaz með þrennu gegn RB Leipzig
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.