17.11.05 - 20:26
Hafliði Breiðfjörð
Ásthildur Helgadóttir í Breiðablik (Staðfest)

Ásthildur við undirskriftina í dag

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ásthildur við undirskriftina í dag

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Ásthildur Helgadóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins gekk í dag til liðs við sitt gamla félag, Breiðablik. Ásthildur skrifaði undir tveggja ára samning við Blikana en hún kemur frá Malmö í Svíþjóð þar sem hún hefur verið undanfarin tvö ár.
Ásthildur hefur verið kjörin knattspynukona ársins bæði af félögum sínum í deildarkeppninni og af stjórn KSÍ auk margra annarra viðurkenninga. Hún hefur átt við erfið meiðsli að stríða að undanförnu en er komin aftur í gott form.
Átta ár eru liðin síðan Ásthildur lék síðast með Breiðablik en síðan þá hefur hún leikið með KR, Boston Renedages, ÍBV og Malmö.
Hún hefur leikið 61 landsleik fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 20 mörk. Hún hefur leikið 62 leiki með Breiðablik í deildarkeppni hér á landi og skorað í þeim 39 mörk.