Fotbolti.net
17.11.06 - 14:24
Magnús Már Einarsson

Alfreð Jóhannsson í Njarðvík (Staðfest)

Alfreð Jóhannsson í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Njarðvíkur

Njarðvík úr fyrstu deild hefur fengið sóknarmanninn Alfreð Elías Jóhannsson til liðs við sig en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins nú í dag.
Alfreð sem lék á sínum tíma með Grindavík í efstu deild var spilandi þjálfari hjá GG í þriðju deildinni í sumar áður en að hann fór til Sindra í annarri deildinni og lék þar síðari hluta leiktíðarinnar.

Hann var í láni hjá Njarðvík frá Grindavík árið 2004 og lék þá ellefu leiki í fyrstu deildinni og skoraði í þeim fjögur mörk svo að hann er ekki ókunnugur félaginu.

Heimild: Heimasíðu Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.