Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 17. nóvember 2020 13:00
Elvar Geir Magnússon
Fimm leikmenn sem Arsenal gæti reynt að fá
Houssem Aouar í landsleik með Frakklandi.
Houssem Aouar í landsleik með Frakklandi.
Mynd: Getty Images
Frammistaða Arsenal hefur verið sveiflukennd í upphafi tímabils og telur breska blaðið Mirror að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gæti leitað út á markaðinn í janúarglugganum. Fimm leikmenn sem gætu verið á blaði eru þar nefndir.

Houssem Aouar - Þessi 22 ára miðjumaður Lyon var sterklega orðaður við Arsenal í sumar. Verðmiðinn á honum er pottþétt hár en hann er með sköpunarmátt sem gæti hjálpað Arsenal mikið.

Jack Grealish - Talandi um sköpunarmátt. Grealish hefur hlotið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína með Aston Villa og er að stimpla sig vel inn hjá enska landsliðinu.

Jerome Boateng - Yfirgefur Bayern München eftir tímabilið en varnarmaðurinn reynslumikli má hefja viðræður við önnur félög á nýju ári.

Dominik Szoboszlai - Ungverjinn ungi sem gerði út um EM vonir okkar Íslendinga. Frammistaða hans með Red Bull Salzburg hefur vakið mikla athygli.

Brenner - Tvítugur Brasilíumaður sem hefur skorað 17 mörk í 27 leikjum fyrir Sao Paulo og gæti komið með nýja tóna í sóknarleik Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner