17.12.05 - 16:10
Hafliði Breiðfjörð
Örn Kató Hauksson í Val (Staðfest)


Mynd: ka-sport.is


Mynd: ka-sport.is
Örn Kató Hauksson sem leikið hefur með KA undanfarin ár gekk í dag í raðir Valsmanna og gerði við liðið tveggja ára samning. Örn staðfesti þetta sjálfur við Fótbolta.net nú í dag en hann sagði að fleiri lið hafi haft samband við sig, þar af eitt annað í Landsbankadeildinni. Hann valdi hinvegar Val því það var eina félagið sem hann hafði áhuga á.
Örn Kató er 23 ára gamall. Hann varð samningslaus hjá KA um síðustu mánaðarmót.
Hann lék 5 leiki með KA í 1. deildinni á síðustu leiktíð en lék alla leiki liðsins í Landsbankadeild og VISA bikar sumarið 2004. Hann á að baki tvo landsleiki með U-21 árs landsliði Íslands.
Hann lék 5 leiki með KA í 1. deildinni á síðustu leiktíð en lék alla leiki liðsins í Landsbankadeild og VISA bikar sumarið 2004. Hann á að baki tvo landsleiki með U-21 árs landsliði Íslands.
