Fotbolti.net
17.12.21 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sandra nýtur lífsins með Ellu - „Ætla mér að koma aftur á völlinn"

Sandra María

Sandra María

Canon

Mynd: Mirko Kappes

Kvennaboltinn
Sandra María Jessen er leikmaður Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Hún hefur ekkert spilað á árinu þar sem hún var að eignast sitt fyrsta barn. hennar síðasti leikur var fyrir ári síðan.

Sandra eignaðist dóttur í september. Fótbolti.net forvitnaðist aðeins út í stöðuna á Söndru.
Það er allt gott að frétta af mér, ég er byrjuð á endurkomunni," sagði Sandra.

„Ég gaf mér þrjá mánuði til að ná mér líkamlega og til að aðlagast og njóta nýja lífsins með Ellu. Ég er svona að meta stöðuna, þ.e.a.s. hver skynsamlegasta ákvörðunin er varðandi fótbolta, með fjölskylduna í huga."

„Eitt er víst, ég ætla mér að koma aftur á völlinn. Hvar og nákvæmlega hvenær er annað efni,"
sagði Sandra sem er 26 ára og á að baki 31 landsleik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.