Fotbolti.net
18.01.06 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Escude til Sevilla (Staðfest)

Escude til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla hefur keypt varnarmanninn Julien Escude frá hollenska liðinu Ajax fyrir verð sem talið er hljóða upp á tvær milljónir evra.
Þessi 26 ára Frakki kom til Ajax frá Stade Rennes árið 2003 en hann náði ekki að festa sig í sessi hjá hollenska liðinu á þessari leiktíð og því ákvað hann að söðla um og fara til Spánar.

Escude var á sínum tíma orðaður við Manchester United en áhugi enska liðsins á leikmanninn þegar hann meiddist þar sem hann var úti að ganga með hundinn sinn!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.