18.01.07 - 12:10
Alexander Harrason
Rossi lánaður til Parma (Staðfest)

Rossi í baráttunni við Birki Má Sævarsson í U21 árs landsleik Íslendinga og Ítala í Laugardalnum.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Sóknarmaðurinn Giuseppe Rossi er farinn á lánssamningi út tímabilið til Parma í heimalandi sínu en Rossi finnst hann þurfa að spila meira af alvöru fótbolta. Frá þessu var greint á opinberu heimasíðu Manchester United í dag.
Þessi 19 ára gamli framherji var fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Newcastle en fékk einungis þrisvar byrjunarliðssæti á St James' Park.
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United vill halda honum hjá liðinu en hann segir að hann verði að fá að spila og öðlast reynslu annarsstaðar.
Rossi var á mála hjá Parma árið 2004 þegar Manchester United keyptu hann og því ætti hann að þekkja til á þeim bænum.
Sem stendur eru Parma í nítjánda sætinu í Seríu A með tólf stig en þeir eiga leik á sunnudaginn gegn Torino á heimavelli.

Heimild: Opinber heimasíða Man Utd