Fotbolti.net
18.01.07 - 18:05
Magnús Már Einarsson

Lauren til Portsmouth (Staðfest)

Lomana Lua Lua og Lauren sem verða núna samherjar.

Lomana Lua Lua og Lauren sem verða núna samherjar.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur keypt hægri bakvörðinn Lauren frá Arsenal og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning við félagið. Lauren sem verður þrítugur á morgun hafði einnig átt í viðræðum við West Ham en þessi knái Kamerúni ákvað að fara til Portsmouth.
,,Lauren er framúrskarandi leikmaður. Hann er frábært íþróttamaður og atvinnumaður, mjög sterkur og fljótur einnig. Hann verður mikil styrking fyrir okkur, hann er fljótur og getur leikið í ýmsum stöðum í vörninni og á miðjunni. "

,,Ég er ánægður með að hann hafi valið Portsmouth fram yfir hin liðin sem voru á eftir honum. Þetta sýnir einungis hversu langt við höfum komist á stuttum tíma,"
sagði Harry Redknapp stjóri Portsmouth.

Lauren var einnig ánægður með að vera kominn til Portsmouth. ,,Þetta eru frábær skipti fyrir mig. Portsmouth er að eiga gott tímabil og eru að berjast um sæti í Evrópu og ég stefni að því að spila minn þátt í þeirri baráttu."

,,Ég hef verið mjög hrifinn af plönum liðsins fyrir framtíðina bæði innan vallar og utan og það er þess vegna sem ég hef ákveðið að koma til Fratton Park. Það verður einnig gott að vera aftur í liði með Sol Campell og Kanu,"
sagði Lauren sem fer beint inn í leikmannahóp Portsmouth fyrir leik liðsins gegn Charlton um helgina.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.