Fotbolti.net
18.01.08 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð

James McFadden til Birmingham (Staðfest)

James McFadden til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skoski landsliðsframherjinn James McFadden er genginn í raðir Birmingham frá Everton en kaupverðið var ekki gefið upp.
,,Félögin komust að samkomulagi um kaupverð sem ekki verður uppgefið á miðvikudagskvöld og McFadden hefur nú komist í gegnum læknisskoðun og samþykkt persónulega skilmála," sagði á vefsíðu Everton í dag.

Hjá Birmingham mun McFadden hitta fyrir Alex McLeish sem stýrði honum hjá skoska landsliðinu í undankeppni EM 2008 þar sem Skotar rétt misstu af tækifæri til að spila í lokakeppni mótsinsí sumar.

McFadden lék 137 leiki fyrir Everton en þangað hafði hann komið á 1,25 milljónir punda árið 2003. Hann var lykilmaður í skoska landsliðinu og skoraði eftirminnilegt sigurmark gegn Frökkum í 1-0 sigri í París.

,,Hann heillar stuðningsmennina, en hann hefur líka mikla ástríðu fyrir þessu," sagði McLeish við Sky Sports og bætti við að McFadden væri hvers penný virði af þeim 5 milljónum punda sem hann kostaði.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.