Fotbolti.net
18.01.08 - 17:40
Hafliði Breiðfjörð

Eric Edman til Wigan (Staðfest)

Eric Edman.

Eric Edman.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænski landslismaðurinn Erik Edman gekk í dag til liðs við Wigan Athletic fra Rennes í Frakklandi en enska félagið staðfesti í dag að félagaskiptin hafi gengið í gegn.
Edman er 29 ára gamall fyrrum leikmaður Tottenham Hotspur. Hann er vinstri bakvörður og er þriðju kaup Steve Bruce til félagsins í janúar, kemur á eftir Wilson Palacios og Maynor Figueroa sem báðir eru frá Honduras.

Edman á að baki 53 landsleiki fyrir hönd Svíþjóðar. Ekki er búist við að hann fái leikheimild með Wigan fyrir leikinn gegn Everton um helgina.

,,Það er ekki oft sem svo reyndir vinstri bakverðir eru á lausu og ég er ekki hissa á að svo mörg félög hafi sýnt honum áhuga," sagði Bruce á vefsíðu félagsins.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.