18.01.08 - 20:39
Guðmundur Þorkelsson
Kjartan Finnboga til Sandefjord í Noregi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þessi ungi og efnilegi framherji skrifaði í dag undir 3ára samning hjá Sandefjord, og nú á hann einungis eftir að standast læknisskoðun, áður en hann klæðist blárri treyju Sandefjord.
Frá KR fór hann til Celtic undir stjórn Martin O´Neill, en hefur ekki fengið að speyta sig með A-liði Celtic.
Hann hefur skorað grimmt fyrir varaliðið og verið boðinn nýr samningur, en afþakkað.
Åtvidarberg í Svíþjóð hefur haft Kjartan á láni frá Celtic frá því í haust, en á morgun flýgur hann heim til Íslands til að sækja dótið sitt og á miðvikudaginn haldur hann svo til Noregs.
Þessi 21árs ára markahrókur, er með einfalt mottó. ,,Ég vil bara skora mörk." Með þessum orðum er þá búið að vara varnarmenn norsku deildarinnar við.
Það er víst að Sandefjord gera góð kaup á Kjartani þar sem hann er laus undan samningi, en þrátt fyrir það á Celtic rétt á greiðslu vegna þess hve ungur Kjartan er.
Kjartan spilaði 7 leiki fyrir Åtvidarberg í haust og skoraði 4 mörk samkvæmt þjálfara Sandefjord, Tor Thodesen.

Heimild: Sandefjord Fotball | sb.no