Zlatan Ibrahimovic skoraði tvennu í sigri AC Milan gegn Cagliari í kvöld. Zlatan sagði í viðtali eftir leikinn að Cagliari hefði gert toppliðinu erfitt fyrir.
„Ég þurfti að skora annað, það þurfti tvö til að vinna. Þetta var erfiður leikur," sagði Zlatan við Sky Sports Italia.
„Ég þurfti að skora annað, það þurfti tvö til að vinna. Þetta var erfiður leikur," sagði Zlatan við Sky Sports Italia.
Zlatan hafði ekki leikið í tæpa tvo mánuði vegna meiðsla. Mario Mandukic er að ganga í raðir AC Milan á frjálsri sölu. Zlatan er ánægður með að Króatinn sé að mæta.
„Ég er glaður, núna verðum við tveir að hrella andstæðingana."
Zlatan hefur áður sagt að Milan ætti að stefna á meistaratitilinn. Hann var spurður: Hefuru trú á að þið getið unnið titilinn?
„Ég trúi á Zlatan," sagði sænska markavélin. Lokaspurningin var svo um mögulega framlengingu á samningi og Zlatan sagði að það lægi hjá Paolo Maldini.
„Ég er mjög ánægður, endurkoman til Milan hefur breytt mér á margan hátt," sagði Zlatan að lokum.
Athugasemdir