Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 18. janúar 2023 08:35
Elvar Geir Magnússon
Sancho farinn að æfa með liðsfélögum sínum á ný
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Eftir að hafa verið í einstaklingsæfingum í margar vikur þá er Jadon Sancho farinn að æfa á ný með liðsfélögum sínum hjá Manchester United. Samkvæmt enskum fjölmiðlum æfði Sancho með liðinu í gær.

Það hafa einhverjir andlegir erfiðleikar verið að hrjá Sancho sem hefur alls ekki staðið undir væntingum síðan United borgaði 73 milljónir punda til að fá hann frá Borussia Dortmund í júlí 2021.

Sancho var um tíma í Hollandi í einstaklingsæfingum og Erik ten Hag talaði um að hann væri ekki á réttum stað, hvorki líkamlega né andlega.

Sancho hefur ekki spilað fyrir United í rúmlega tíu vikur, síðustu mínútur hans komu í 1-1 jafntefli gegn Chelsea á Stamford Bridge í október.
Athugasemdir
banner
banner
banner