18.02.05 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Stefán Gíslason til Lyn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Stefán Gíslason miðjumaður Keflvíkinga hefur verið seldur til norska úrvalsdeildarfélagsins Lyn. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta þar sem Rúnar Arnarson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur staðfestir tíðindin og segist hafa fengið ásættanlegt verð fyrir leikmanninn.
Stefán átti frábært sumar með Keflavík og var meðal bestu leikmanna efstu deildar. Það vitnaðist líklega best þegar hann var valinn í landslið Íslands í lok ágúst mánaðar. Samningur Stefáns við Keflavík átti að renna út í lok leiktíðar en rúmri viku áður en mótinu lauk skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið svo ljóst er að Keflavík fær greiðslu fyrir hann.
Keflavík hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku frá því að tímabilinu lauk í haust og misst alla sína bestu menn nú þegar Stefán er farinn. Til gamans er hér að neðan listi yfir þá leikmenn sem hafa yfirgefið félagið, 8 leikmenn og flestir engir smá leikmenn og þjálfari.
Milan Stefán Jankovic (1960) þjálfari í Grindavík
Zoran Daníel Ljubicic (1967) í Völsung
Þórarinn Brynjar Kristjánsson (1980) í Aberdeen
Haraldur Freyr Guðmundsson (1981) í Aalesund
Ólafur Gottskálksson (1968) í Torquay
Scott McKenna Ramsay (1975) verður líklega ekki með næsta sumar
Sreten Djurovic (1974) í Völsung
Magnús Sverrir Þorsteinsson (1982) í Grindavík
Stefán Gíslason (1980) Keflavík
Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir komna og farna í efstu deild karla