18.02.05 - 18:14
Hafliði Breiðfjörð
Ómar Jóhannsson til Keflavíkur (Staðfest)

Markvörðurinn Ómar Jóhannsson er genginn í raðir síns gamla félags, Keflavíkur. Ómar fékk leikheimild með félaginu í dag og er ljóst að hann er mikill fengur fyrir bikarmeistarana. Hann lék með félaginu árin 2001-2003 en fór svo til Svíþjóðar þar sem hann lék með Bunkeflo.
Hann hafði áður verið hjá Bunkeflo og Malmö í Svíþjóð áður en hann kom til Keflavíkur árið 2001.
Hann hefur einu sinni verið í A-landsliðshóp Íslands í leik gegn Mexíkó haustið 2003 en hann á 19 leiki að baki með U-21 árs landsliðinu og 15 leiki samanlagt með U-17 og U-19 liðunum.
Þá gekk Bjarni Sæmundsson einnnig í Keflavík í dag en hann kemur frá nágrannafélaginu, Njarðvík en hann kemur á láni