Fotbolti.net
18.02.08 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Jeppe Opstrup í Hött (Staðfest)

Jeppe í leik með Huginn síðastliðið sumar.

Jeppe í leik með Huginn síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Agl.is/Gunnar Gunnarsson

Höttur úr annarri deild hefur fengið góðan liðsstyrk en liðið hefur samið við danska framherjann Jeppe Opstrup sem hefur leikið með Huginn undanfarin tvö tímabil.
Jeppe skoraði tíu mörk í fimmtán leikjum fyrir Huginn í annarri deildinni árið 2006 og hann var í kjölfarið valinn í lið ársins af fyrirliðum og þjálfurum.

Á síðustu leiktíð settu meiðsli strik í reikninginn hjá Jeppe en hann skoraði átta mörk í jafnmörgum leikjum í þriðju deildinni.

Jeppe mun væntanlega fá það hlutverk hjá Hetti að fylla skarðið sem Denis Curic skilur eftir sig. Curic gekk til liðs við Hauka á dögunum en hann lék vel í annarri deildinni á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk.

Sem stendur æfir og keppir hinn 23 ára gamli Jeppe í heimalandi sínu en hann mun koma til Egilsstaða um páskana og æfa með Hetti.

Heimild: Hottur.blogdrive.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.