Fotbolti.net
18.02.08 - 16:49
Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þórður Halldórsson í Stjörnuna (Staðfest)

Bjarni Þórður Halldórsson í æfingagalla Stjörnunnar.

Bjarni Þórður Halldórsson í æfingagalla Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson er genginn í raðir Stjörnunnar frá Fylki og fær leikheimild hjá sínu nýja félagi á miðvikudag, 20. febrúar.
Bjarni var ekki með KSÍ samning hjá Fylki og því gat hann gengið í raðir Stjörnunnar án greiðslu og gerir eins árs samning við Garðarbæjarfélagið, út þetta ár, og leikur með þeim í 1. deildinni í sumar.

Bjarni hafði gert samning við Fylki sem átti að gilda út þetta ár en þar sem Árbæjarfélagið skilaði samningnum ekki inn til KSÍ gat Bjarni farið til Stjörnunnar án vandræða. Því varð hann samningslaus í lok síðasta árs eins og fyrri samningur hans greindi til um.

Bjarni Þórður var í láni hjá Víkingi R. síðastliðið sumar þar sem hann lék ellefu leiki samanlagt í Landsbankadeildinni og VISA-bikarnum.

Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði einn leik með Fylki sumarið 2006 tímabili en hann hafði lent í erfiðum meiðslum og missti því að byrjun tímabilsins. Fylkir fékk til sín Fjalar Þorgeirsson fyrir það tímabil og hann hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðan þá.

Bjarni Þórður sem er uppalinn hjá Fylki lék alla leiki liðsins árið 2004 og 2005 en hann á að baki sjö U-21 árs landsleiki fyrir Íslands hönd,
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.