Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   mið 18. febrúar 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emma Björt í KR (Staðfest)
Kvenaboltinn
Emma Björt í búningi KR.
Emma Björt í búningi KR.
Mynd: KR
Emma Björt Arnarsdóttir hefur skrifað undir samning við KR sem gildir út næsta tímabil.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vesturbæjarstórveldinu.

Emma Björt, sem er fædd árið 2006, er miðjumaður sem hefur spilað yfir 70 meistaraflokksleiki fyrir FH, ÍH, Fram, Fylki og Grindavík. Hún er uppalin í FH en spilaði á síðasta tímabili með Grindavík/Njarðvík og Fylki í Lengjudeildinni.

Auk þess hefur hún spilað fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands.

KR er á leið inn í sitt annað tímabil í röð í Lengjudeildinni en John Andrews tók við liðinu eftir síðasta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner