Fotbolti.net
18.02.26 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Höfðu samband við Xabi Alonso

Xabi Alonso.

Xabi Alonso.

Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Marseille setti sig í samband við Xabi Alonso um að taka við stjórastöðunni hjá félaginu. Hann hafði hins vegar ekki mikinn áhuga á stöðunni.

Frá þessu segir Fabrice Hawkins, blaðamaður RMC í Frakklandi. Hann segir að óvissan sem er í kringum félagið hafi fælt Alonso frá.
Alonso er án starfs eftir að hafa verið rekinn frá Real Madrid fyrir ekki svo löngu síðan.

Alonso gerði þar áður stórkostlega hluti með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Hann hefur undanfarið verið orðaður við Liverpool en Arne Slot er þar valtur í sessi.

Það þykir nokkuð ljóst að Habib Beye mun taka við Marseille af Robert De Zerbi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.