Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Bodö/Glimt sigraði Inter
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þremur síðustu leikjum kvöldsins var að ljúka í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem norska undraliðið Bodö/Glimt hafði betur gegn enn einu ítalska stórveldinu. Kasper Högh, fyrrum lánsmaður hjá Val, var allt í öllu.

Bodö/Glimt fékk Inter, sem komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra, í heimsókn og náði forystunni þegar Sondre Fet slapp í gegn eftir laglegt spil á 20. mínútu. Kasper Högh átti stoðsendinguna.

Framherjinn bráðefnilegi Francesco Pio Esposito svaraði með jöfnunarmarki fyrir Inter og var staðan 1-1 eftir fjörugan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora annað mark.

Í síðari hálfleik voru heimamenn sterkari aðilinn og nýttu færin sín vel. Fyrst var það Jens Petter Hauge sem endurheimti forystuna með frábæru skoti eftir sendingu frá Högh og þremur mínútum síðar kórónaði Högh frábæran leik með marki.

Staðan var því orðin 3-1 á 64. mínútu og gerðu heimamenn vel að róa leikinn niður. Þeir lokuðu vel á Inter til að sigla frábærum og sögulegum sigri í höfn. Hægt er að búast við rosalegum leik á San Siro þegar liðin mætast aftur næsta þriðjudag.

Atlético Madrid heimsótti þá Club Brugge og komst í tveggja marka forystu þökk sé mörkum frá Julián Alvarez og Ademola Lookman í fyrri hálfleik.

Heimamenn í liði Brugge skiptu algjörlega um gír og mættu grimmir til leiks í síðari hálfleikinn. Þeir lágu á lærlingum Diego Simeone og sköpuðu sér furðu mikið af færum. Raphael Onyedika og Nicoló Tresoldi skoruðu sitthvort markið til að jafna leikinn en aftur náðu gestirnir frá Madríd forystunni á 79. mínútu.

Club Brugge bankaði og bankaði á dyrnar þar til Christos Tzolis tókst að jafna metin á ný á lokamínútum. Meira var ekki skorað svo lokatölur urðu 3-3.

Atlético tapaði síðasta heimaleik sínum í deildarkeppninni gegn Bodö/Glimt og er ljóst að lærlingar Simeone mega ekki gefa neitt eftir í seinni leiknum á Metropolitano leikvanginum næsta þriðjudagskvöld.

Bayer Leverkusen hafði að lokum betur gegn Olympiakos. Patrik Schick reyndist hetjan þar með tvennu á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik.

Olympiakos sýndi mjög flottar rispur en gestirnir frá Leverkusen reyndust einu númeri of stórir.

Bodo-Glimt 3 - 1 Inter
1-0 Sondre Fet ('20 )
1-1 Pio Esposito ('30 )
2-1 Jens Hauge ('61 )
3-1 Kasper Hogh ('64 )

Club Brugge 3 - 3 Atletico Madrid
0-1 Julian Alvarez ('8 , víti)
0-2 Ademola Lookman ('45+4 )
1-2 Raphael Onyedika ('52 )
2-2 Nicolo Tresoldi ('60 )
2-3 Joel Ordonez ('79 , sjálfsmark)
3-3 Christos Tzolis ('89 )

Olympiakos 0 - 2 Leverkusen
0-1 Patrik Schick ('60 )
0-2 Patrik Schick ('63 )
Athugasemdir
banner