,.Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við serbneska miðvörðinn Petar Planic og mun hann leika með Þór í sumar," þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Petar er 32 ára og hefur spilað fjölda leikja í efstu deild í Serbíu. Hann á þá einnig leiki að baki í asísku Meistaradeildinni.
Hann er réttfættur og var síðast á mála hjá Maziya S&RC á Maldíveyjum
„Félagið væntir mikils af Petar og þeirri reynslu sem hann kemur með til að gefa hinu unga liði Þórs í Lengjudeildinni í sumar. Velkominn í Þorpið!"
Komnir í Þór
Petar Planic frá Maldíveyjum
Farnir:
Emanuel Nikpalj
Jakob Franz Pálsson til Venezia á Ítalíu (Á láni)
Jónas Björgvin Sigurbergsson
Izaro Abella Sanchez í Leikni F.
Kaelon Fox til Bandaríkjanna
Loftur Páll Eiríksson í Leikni R.
Sveinn Elías Jónsson hættur
Sveinn Óli Birgisson
Tilkynning!
— Þór fótbolti (@Thor_fotbolti) March 18, 2021
Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við serbneska miðvörðinn Petar Planic og mun hann leika með Þór í sumar. Velkominn í Þorpið!#dfk pic.twitter.com/1wLBmUGje3
Athugasemdir