Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 08:45
Elvar Geir Magnússon
Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool
Powerade
Mika Godts er orðaður við Man Utd.
Mika Godts er orðaður við Man Utd.
Mynd: EPA
Arsenal fær samkeppni um Goretzka.
Arsenal fær samkeppni um Goretzka.
Mynd: EPA
Kees Smit vill fara í sólina.
Kees Smit vill fara í sólina.
Mynd: EPA
Manchester United hefur áhuga á belgískum sóknarleikmanni, Alonso vill fá þrjá leikmenn ef hann tekur við Liverpool og Arsenal mun fá samkeppni frá Ítalíu um Goretzka. Þetta og margt fleira í slúðurpakkanum.

Manchester United hefur haft samband við Ajax þar sem félagið hefur áhuga á belgíska sóknarleikmanninum Mika Godts (20) sem leikur á vinstri vængnum. (Sacha Tavolieri)

Ef Xabi Alonso tekur við Liverpool í sumar mun hann reyna að fá ítalska varnarmanninn Alessandro Bastoni (26) frá Inter, miðjumanninn Adam Wharton (22) frá Crystal Palace og kantmanninn Bradley Barcola (23) frá Paris St-Germain. (Teamtalk)

Manchester United og Liverpool hafa bæði aukinn áhuga á portúgalska miðjumanninum Joao Gomes (25) hjá Wolves. (Teamtalk)

Arsenal mun fá samkeppni frá Juventus um undirskrift þýska landsliðsmannsins Leon Goretzka (31) en þýski landsliðsmiðjumaðurinn mun að öllum líkindum yfirgefa Bayern München þegar samningur hans rennur út í sumar. (Gazzetta dello Sport)

Brighton vill fá þýska kantmanninn Said el Mala (19) frá Köln en hann var að skipta um umboðsmann. (Bild)

Manchester City gæti leyft brasilíska kantmanninum Savinho (21) að fara í sumar en Tottenham gæti reynt við hann, ef liðið heldur sæti sínu. (Football Insider)

Juventus mun reyna að fá portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva (31) frá Manchester City. Áhugi ítalska félagsins á Sandro Tonali (25) hjá Newcastle hefur kólnað þar sem Manchester United og Arsenal vilja ítalska landsliðsmiðjumanninn. (Gazzetta dello Sport)

Fulham hefur náð munnlegu smakomulagi um kaup á bandaríska framherjanum Ricardo Pepi (23) frá PSV Eindhoven en búið er að semja við leikmanninn um kaup og kjör. (Fabrizio Romano)

Richard Hughes hjá Liverpool er á þriggja manna lista yfir þá sem gætu tekið við sem yfirmaður fótboltamála hjá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. (Telegraph)

Real Madrid og Barcelona leiða kapphlaup við ensk félög um hollenska miðjumanninn Kees Smit (20) hjá AZ Alkmaar. Hann vill fara í sólina á Spáni. (AS)

AC Milan horfir til írska framherjans Troy Parrott (24) en hann gæti verið falur fyrir um 25 milljónir punda frá AZ alkmaar í sumar. (Independent)

Hansi Flick mun framlengja samning sinn sem stjóri Barcelona til 2028 eftir að Joan Laporta var endurkjörinn sem forseti félagsins. (Florian Plettenberg)
Athugasemdir
banner
banner