Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 23:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gerrard: Þarna er framtíðarfyrirliði Liverpool
Steven Gerrard.
Steven Gerrard.
Mynd: EPA
Steven Gerrard, goðsögn hjá Liverpool, hrósaði Ungverjanum Dominik Szoboszlai í hástert eftir sigur Liverpool á Galatasaray í Meistaradeildinni í kvöld.

Szoboszlai átti góðan leik en hann hefur verið besti leikmaður Liverpool á leiktíðinni.

Hinn 25 ára gamli Szoboszlai á bara tvö ár eftir af samningi sínum og hefur verið orðaður við Real Madrid en Gerrard vonar að framtíð hans sé hjá Liverpool.

„Ég vona að hann verði hér lengur. Ég held að þarna sé framtíðarfyrirliði Liverpool," sagði Gerrard í útsendingu TNT Sports.

Szoboszlai mætti í viðtal eftir leikinn og talaði þar um hversu mikill heiður væri að bera númer 8 á bakinu hjá Liverpool. Það er númerið sem Gerrard spilaði svo lengi með hjá félaginu.

„Ég var barn að horfa á hann spila, núna er ég númer 8 og það er ótrúleg tilfinning," sagði Ungverjinn geðþekki.
Athugasemdir
banner
banner