18.04.07 - 19:08
Magnús Már Einarsson
Ingi Þór til Fjarðabyggðar á láni (Staðfest)

Ingi Þór fagnar marki í leik með 2.flokki HK í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingi Þór fagnar marki í leik með 2.flokki HK í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð úr fyrstu deild hefur fengið Inga Þór Þorsteinsson að láni frá liði HK úr Landsbankadeildinni og verður hann í einn mánuð hjá liðinu til að byrja með.
Ingi Þór sem getur leikið bæði framarlega á vellinum og á miðjunni gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.
Ingi sem verður tvítugur í ár hefur leikið sex leiki með HK í Lengjubikarnum í ár en í fyrra lék hann einn leik með liðinu í fyrstu deildinni.
Ingi sem verður tvítugur í ár hefur leikið sex leiki með HK í Lengjubikarnum í ár en í fyrra lék hann einn leik með liðinu í fyrstu deildinni.
