18.04.08 - 15:38
Hafliði Breiðfjörð
Daninn Rune Koertz í raðir Leiknis (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknismenn fengu í dag liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deildinni á komandi tímabil þegar danski leikmaðurinn Rune Koertz gekk í raðir félagsins. Frá þessu var greint á vefsíðu Leiknis í dag en Koertz sem er 25 ára gamall kemur frá Aarhus Fremad í Danmörku.
Rune kom til reynslu hjá Leikni í vetur og lék með liðinu í æfingaleik gegn Fylki snemma árs. Hann er líkamlega sterkur og fjölhæfur leikmaður sem hefur leikið sem djúpur miðjumaður í Danmörku en getur einnig leikið sem miðvörður.
Leiknismenn hafa misst tvo miðverði fá síðustu leiktíð því Halldór Kristinn Halldórsson gekk í raðir FH á láni út tímabilið og Gunnar Jarl Jónsson hætti knattspyrnuiðkun.
Koertz verður annar Daninn í herbúðum leiknis því fyrir er hjá félaginu markahrókurinn Jakob Spangsberg sem hefur leikið með liðinu síðan 2004. Þeir voru báðir áður á mála hjá Esbjerg í Danmörku.
Koertz mun missa af fyrstu leikjum Leiknis í 1. deildinni en hans fyrsti leikur fyrir félagið verður líklega heimaleikur gegn Víkingi Ólafsvík í 5. umferð þann 6. júní.

Heimild: Vefsíða Leiknis