Fotbolti.net
18.04.19 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Niðurtalningin: FH - Brynjar Ásgeir og Björn Daníel

Auglýsing
<b>Niðurtalningin:</b> FH - Brynjar Ásgeir og Björn Daníel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina.

Í dag er komið að því að ræða við Hafnfirðinga sem eru komnir aftur heim í FH fyrir tímabilið en FH-ingum er spáð 3. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Björn Daníel Sverrisson.
Eftir tvö ár í Grindavík er Brynjar Ásgeir kominn aftur heim í Kaplakrikann. Aðeins lengra er síðan Björn Daníel spilaði í FH-treyjunni en hann hefur verið í atvinnumennsku bæði í Noregi og Danmörku í fimm ár.

Fyrsti leikur FH í Pepsi Max-deildinni er á laugardaginn 27. apríl þegar nýliðar HK koma í Kaplakrikann klukkan 16:00.

Hægt er að hlusta á Niðurtalninguna bæði hér að ofan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Þú getur keypti bæði Brynjar Ásgeir og Björn Daníel í Draumaliðið þitt. Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsdeild Eyjabita og Fótbolta.net!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.