Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. apríl 2021 13:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Saka með tána fyrir innan og mark Ceballos dæmt af - „Þessi þvæla"
Mynd: EPA
Dani Ceballos hélt hann hefði komið Arsenal yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði með skalla.

Markið var hins vegar dæmt af þegar VAR skoðaði markið, hægri fótur Bukayo Saka var millímetrum fyrir innan varnarmann Fulham í aðdraganda marksins.

Smelltu hér til að sjá atvikið.

„Er VAR að reyna að bjarga Fulham frá falli?" skrifar Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, á Twitter.

„Fyrst markið hjá Wolves [fyrir rúmri viku] og svo þessi þvæla," skrifar Jón og birtir mynd af rangstöðunni áðan.

Staðan í leik Arsenal og Fulham er markalaus í leikhléi.





Athugasemdir
banner
banner
banner