Fotbolti.net
18.05.05 - 22:25
Magnús Már Einarsson

Kristján þjálfar Keflavík í sumar (Staðfest)

Kristján er hér ásamt Guðjóni Þórðarsyni.

Kristján er hér ásamt Guðjóni Þórðarsyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Kristján Guðmundsson mun klára sumarið sem þjálfari Keflvíkinga en þetta staðfesti Rúnar Arnarsson formaður knattspyrnudeildar liðsins við Fótbolti.net í kvöld. Kristján tók tímabundið við þjálfun Keflvíkinga eftir að Guðjón Þórðarson sagði starfi sínu hjá liðinu lausu á föstudag.
Áður hafði Kristján verið aðstoðarmaður Guðjóns. Kristján stýrði Keflvíkingum í 3-0 tapinu gegn FH í fyrradag og nú hefur hann eins og fyrr segir verið ráðinn þjálfari liðsins í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.