Fotbolti.net
18.05.06 - 05:57
Magnús Már Einarsson

Barbarez til Leverkusen (Staðfest)

Barbarez til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Sergej Barbarez hefur gert tveggja ára samning við Bayer Leverkusen og mun hann ganga til liðs við félagið frá Hamburg SV í lok júní.
Hinn 34 ára gamli Barbarez sem er frá Bosníu/Herzegóvínu átti gott tímabil með Hamburg og var hann einn af lykilmönnunum í því að liðið náði þriðja sæti í deildinni eftir að hafa verið í kringum miðjuna undanfarin ár.

Hjá Leverkusen mun hann leysa Dimitar Berbatov af hólmi þegar að sá síðarnefndi fer til Tottenham í sumar. ,,Reyndar var ég að vonast til að vera áfram hjá Hamburg en ég náði ekki að semja," sagði Barbarez í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.