18.05.06 - 17:04
Magnús Már Einarsson
Jevtic lánaður til Aftureldingar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Afturelding úr annarri deild hefur fengið sóknarmanninn Danislav Jevitc að láni frá Víkingi Reykjavík en hann hefur ekki náð að vinna sér sæti hjá síðarnefnda liðinu.
Jevtic sem er 27 ára kom til Víkinga í vor og var til reynslu í æfingaferð liðsins erlendis. Hann kom síðan heim og hefur verið hjá liðinu síðan þá en hann hefur nú verið lánaður til Aftureldingar.
Félagaskiptin hafa gengið í gegn og því er hann löglegur með Aftureldingu gegn Skallagrími í VISA-bikarnum klukkan 20:00 í Borgarnesi í kvöld.
Félagaskiptin hafa gengið í gegn og því er hann löglegur með Aftureldingu gegn Skallagrími í VISA-bikarnum klukkan 20:00 í Borgarnesi í kvöld.
