Fotbolti.net
18.05.07 - 11:52
Magnús Már Einarsson

Birkir Sverrisson í KA frá FH (Staðfest)

Birkir (til vinstri) og Matthías Vilhjálmsson (til hægri)

Birkir (til vinstri) og Matthías Vilhjálmsson (til hægri)

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA úr fyrstu deildinni hefur fengið miðju og varnarmanninn Birki Halldór Sverrisson frá FH.
Birkir er uppalinn hjá BÍ á Ísafirði en hann gekk til liðs við FH árið 2004.

Birkir sem verður tvítugur í ár gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust en hann var í liði FH sem varð Íslands og bikarmeistari í flokknum. Hann hefur leikið sex leiki fyrir hönd U17 ára landsliðs Íslands og einn fyrir U19 ára.

Hann hefur þegar fengið leikheimild með KA og getur hann því leikið með liðinu gegn Njarðvík í fyrstu deild karla í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.