Kieran Tierney er nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Arsneal. Það er Goal sem greinir frá því.
Tierney er vinstri bakvörður sem komið hefur vel inn í lið Arsenal en átt í erfiðleikum með meiðsli á mörgum köflum.
Tierney er vinstri bakvörður sem komið hefur vel inn í lið Arsenal en átt í erfiðleikum með meiðsli á mörgum köflum.
Goal segir frá því að það sé von allra sem að viðræðunum koma að allt verði klappað og klárt á næstu dögum.
Tierney er 24 ára bakvörður og gildir núgildandi samningur hans við Arsenal út tímabilið 2023/24.
Hann gekk í raðir Arsenal frá Celtic fyrir tímabilið 2019/20. Í dag er hann í byrjunarliði skoska landsliðsins sem mætir Englandi á Wembley. Leikurinn hefst klukkan 19:00.
Athugasemdir