Fotbolti.net
18.06.25 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Skotmark Arsenal til Barcelona (Staðfest)

Skotmark Arsenal til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Barcelona hefur staðfest kaup á markmanninum Joan Garcia sem kemur frá grönnunum frá Espanyol.

Barcelona virkjaði 25 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum og Garcia var tilbúinn að koma.

Hann er 24 ára og hafði verið orðaður við bæði Arsenal og Aston Villa í sumar. Hann skrifar undir sex ára samning við spænsku meistarana.
Barcelona samdi nýlega við Wojciech Szczesny, eða allavega hefur verið fullyrt að Pólverjinn hafi samþykkt tveggja ára samning við félagið. Szczesny kom til Barcelona síðasta haust eftir að Marc Andre-Ter Stegen, aðalmarkmaður liðsins, meiddist alvarlega.

Ter Stegen er þessa dagana sterklega orðaður við Galatasaray í Tyrlandi.

Arsenal hefur verið orðað við Kepa Arrizabalaga hjá Chelsea en félaginu vantar mann til vara fyrir David Raya.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.