Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 19:04
Brynjar Ingi Erluson
Stjóraskipti hjá Sheffield United - Selles gerir þriggja ára samning (Staðfest)
Mynd: Sheffield United
Chris Wilder hefur verið rekinn úr starfi stjóra Sheffield United og er Ruben Selles tekinn við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Wilder tók við Sheffield United í annað sinn á þjálfaraferli sínum í desember árið 2023.

Liðið var þá á botni ensku úrvalsdeildarinnar en Wilder tókst ekki að bjarga liðinu frá falli.

Sheffield hafnaði í 3. sæti ensku B-deildarinnar á þessu tímabili og setti um leið félagsmet í stigasöfnun með 90 stigum sínum. Hann fór með liðið alla leið í úrslit umspilsins þar sem það tapaði fyrir Sunderland, 2-1.

Félagið hefur ákveðið að róa í aðra átt en það greinir frá því að Wilder sé nú horfinn á braut og var Ruben Selles um leið kynntur sem nýr stjóri félagsins.

Selles, sem gerði þriggja ára samning við félagið, stýrði síðast Hull City í ensku B-deildinni og tókst að bjarga liðinu frá falli. Áður þjálfaði hann Reading og Southampton.




Athugasemdir
banner
banner