Fotbolti.net
18.06.26 - 16:05
Elvar Geir Magnússon

Spánverjinn sem Liverpool er að kaupa líkari Díaz en Salah

Victor Munoz fagnar marki fyrir Osasuna.

Victor Munoz fagnar marki fyrir Osasuna.

Canon

Mynd: EPA

Allt stefnir í að Victor Munoz verði fyrsti leikmaðurinn sem Andoni Iraola fær til Liverpool.

Liverpool hefur virkjað 35 milljóna punda riftunarákvæði í samningi Munoz við Osasuna. Þessi 22 ára leikmaður er sem stendur með spænska landsliðinu á HM.

Munoz var eftirsóttur en Liverpool var sneggst í sínum aðgerðum. Felix Keith íþróttafréttamaður hjá Mirror hefur skoðað þennan leikmann vel.
Liverpool að stela spænskum landsliðsmanni frá Newcastle
TENGT EFNI

Liverpool að stela spænskum landsliðsmanni frá Newcastle

„Iraola er þekktur fyrir að þróa unga leikmenn og umboðsmenn Munoz telja að það henti leikmanninum vel. Liverpool kláraði læknisskoðunina í Bandaríkjunum í gær," segir Keith.

„Liverpool er að fá gríðarlega spennandi, fjölhæfan kantmann af gamla skólanum. Hann er lágvaxinn, snöggur, beinskeyttur og óhræddur við að takast á við menn einn gegn einum."

Hann er réttfættur og var oftast notaður vinstra megin hjá Osasuna en getur líka notað vinstri fótinn og hefur sjálfur sagt að sér líði vel í öllum sóknarstöðum. Hans augljósasta vopn er hraðinn.

Keith segir að hann sé líkari Luis Díaz en Mo Salah.

„Liverpool fyllti aldrei skarð Luis Díaz þegar hann yfirgaf Bayern München síðasta sumar. Munoz er ekki að koma í stað Mohamed Salah. Hann er frekar fenginn í stað Díaz einu ári eftir brotthvarfið. Liverpool heldur áfram að eltast við Yan Diomande, leikmann RB Leipzig, sem er á HM með Fílabeinsströndinni," segir Keith.

Munoz var með sjö mörk og fimm stoðsendingar í 36 leikjum fyrir Osasuna á liðnu tímabili. Hann kom til félagsins eftir að hafa aðeins fengið fjóra aðalliðsleiki með Real Madrid. Honum var kastað í sviðsljósið hjá Osasuna og blómstraði þó liðið hafi átt í erfiðleikum og forðaðist fall með naumindum.

Auk þess að hafa verið hjá Real Madrid þá var hann á sínum tíma í La Masia akademíu Barcelona. Hann skoraði í sínum fyrsta landsleik með Spáni, í 3-0 sigri gegn Serbíu, og heillaði landsliðsþjálfarann Luis de la Fuente innan og utan vallar.
Spánverjinn sem Liverpool er að kaupa líkari Díaz en Salah
Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola.

Andoni Iraola.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.