18.07.06 - 08:05
Guðmundur Dagur Ólafsson
Jardel aftur til Portúgal (Staðfest)

Jardel í leik með Bolton fyrir þremur árum

Mynd: Getty Images

Brasilíski sóknarmaðurinn Mario Jardel hefur gengið til liðs við portúgalska liðið Beira Mar. Hann vill komast í sitt gamla form og hefur gert eins árs samning við félagið.
Síðustu þrjú ár hefur Jardel aðeins verið skugginn af sjálfum sér en hann mun óneitanlega fá innblástur frá forminu sem hann var í seinast þegar hann var í Portúgal.
Hann varð markhæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar í Portúgal með bæði Porto og Sporting Lisbon og er þetta því mikill fengur fyrir Beira Mar sem eru nýliðar í Úrvalsdeildinni.
"Ég vil hjálpa Beira Mar að halda sæti sínu í deildinni og ég vil vera markhæsti maður deildarinnar aftur," sagði Jardel, sem er 32 ára gamall.