18.07.06 - 16:00
Andri Fannar Stefánsson
Landzaat til Wigan (Staðfest)

Landzaat með boltann í æfingaleik gegn Mexíkó

Mynd: Getty Images

Hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Denny Landzaat hefur gengið til liðs við Wigan frá AZ Alkmaar, kaupverðið er ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum 2.5 milljónir punda.
Hinn 30 ára gamli Landzaat sem spilaði með landi sínu á HM skrifaði undir þriggja ára samning í dag eftir að hafa komið úr fríi í gær.
„Hann hefur hraða, hungrið, yfirsýnina og mikla reynslu, í toppbaráttu í hollensku deildinni og í UEFA keppninni. Landzaat hafði val en það gerir mig enn ánægðari með að hafa fengið hann,“ sagði stjóri Wigan, Paul Jewell.
Fyrirliði Wigan, Arjan de Zeeuw sagði: „Hann hefur góðan hraða, mikla orku og hann kemur til með að styrkja lið okkar mikið,“
Landzaat sem hefur spilað 21 landsleik fyrir Holland átti eitt ár eftir af samning sínum við Alkmaar en hann var fyrirliði þeirra í fyrra þegar þeir lentu í öðru sæti í hollensku deildinni.
„Ég er mjög ánægður með að koma til Englands, ég hef talað við félaga mína í landsliðinu um Wigan liðið og ég veit nákvæmlega hvernig klúbbur þetta er sem ég er að ganga til liðs við og hvað þeir hafa afrekað á síðustu árum,“ sagði Denny Landzaat.
„Denny (Landzaat) er leikmaður sem tekur mikla þátt í sókninni á réttum tímapunktum og skorar mörk, en hann getur líka verið í því að leggja upp mörk. Við þurfum leikmann sem getur komið í sóknina frá miðjunni, hann hefur hraða, orku og ég tel þetta vera mjög góð kaup,“ bætti Arjan de Zeeuw fyrirliði Wigan Athletic við.
Landzaat eru fjórðu kaup Wigan á tímabilinu, en Jewell er nú þegar búinn að kaupa Emile Heskey frá Birmingham á metfé, Fitz Hall frá Crystal Palace og Pole Tomasz Cywka.
„Markmið okkar síðasta vetur var að bæta okkur leikmannalega séð og stöðulega séð, núna erum við að etja kappi við liðin sem enduðu á svipuðum stað og við í deildinni, og ætlum að hafa betur,“ bætti Jewell svo við í lokin.