Fotbolti.net
18.07.07 - 15:49
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Luis Jimenez til Inter Milan (Staðfest)

Jimenez í leik með Lazio á síðasta tímabili

Jimenez í leik með Lazio á síðasta tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Inter Milan hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Luis Jimenez en hann kemur á láni frá Ternana sem er í Serie C.
Þessi 22 ára gamli leikmaður, sem kemur frá Chile, gekk til liðs við Lazio á láni í janúar á síðasta tímabili.

Lazio vonaðist til þess að ganga frá kaupum á leikmanninum en hann ákvað sjálfur að fara til Inter Milan.

,,Ég er mjög ánægður að vera hérna og fá svona mikilvægt og krefjandi verkefni. Ég vil þakka öllum þeim sem gerðu þessi skipti mögulegt, Ternana, Lazio, og umfram allt, Inter sem völdu mig,” sagði Jimenez.

Jimenez skrifaði undir eins árs lánssamning með möguleika á þremur árum í viðbót.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.