Fotbolti.net
18.07.07 - 20:58
Magnús Már Einarsson

Höskuldur Eiríksson aftur í Víking R. (Staðfest)

Höskuldur Eiríksson aftur í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Bakvörðurinn Höskuldur Eiríksson sem hefur verið í láni hjá Viking í Noregi er á heimleið aftur til Víkings Reykjavík en þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu liðsins vikingur.net.
Höskuldur hefur átt við mikil meiðsli að stríða síðan hann fór til Viking á láni í mars og ekki náð að spila í norsku deildinni. Hann er byrjaður að pakka niður í töskur og ætti að geta spilað næsta leik Víkings í Landsbankadeildinni, gegn Fram eftir viku.

Höskuldur hefur verið fyrirliði Víkings undanfarin ár en hann lék alla leiki liðsins í Landsbankadeildinni í fyrra.

Það að Höskuldur komi aftur til Víkings er mikill styrkur fyrir liðið sem er sem stendur með níu stig í áttunda sæti Landsbankadeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.