Fotbolti.net
18.07.17 - 22:15
Arnar Daði Arnarsson

Agla María: Hún keyrði eiginlega yfir mig

Auglýsing
Agla í leiknum í kvöld.

Agla í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Agla María Albertsdóttir varð í dag yngsti leikmaður Íslands á stórmóti en hún var í byrjunarliðinu gegn Frökkum.

„Ég átti enganveginn von á þessu en ég er klár í þetta verkefni sem ég er sett í,\" sagði Agla María Albertsdóttir eftir leik en hún fékk að vita í gær að hún myndi byrja.
„Það var skemmtilegt að fá að vita þetta í gær en ég var smá stressuð.\"

Franskur leikmaður fór hressilega í Agla María í upphafi síðari hálfleiksins.

„Hún keyrði eiginlega yfir mig. Það hefði verið hægt að dæma á þetta. Þessi dómari hefði getað dæmt á fleira. Þetta var klárt víti hjá Fanndísi og ég veit ekki einu sinni af hverju þær fengu víti. Við hefðum alveg eins getað unnið þennan leik og þær.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.